Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
30 / 06 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Þökk sé þeim sem þorðu

Í fyrstu heildstæðu hegningarlögunum sem tóku gildi á Íslandi árið 1869 var að finna eftirfarandi lagagrein: ,,samræði gegn náttúrulegu eðli varðar betrunarhúsavinnu”. Í rúmlega 70 ár eða til ársins 1940 var þetta ákvæði í fullu gildi og var Guðmundur Sigurjónsson Hofdal glímukappi m.a. fundinn sekur um að hafa brotið þetta ákvæði laganna. Var hann dæmdur til 8 mánaða betrunarhúsavinnu árið 1935 fyrir að hafa átt „holdlegt samræði við aðra karla“ á 15-18 ára tímabili.  

Í skjóli fáfræðinnar hafa allt of lengi þrifist fordómar í garð samkynhneigðra sem þurftu þar af leiðandi að lifa skuggalífi á Íslandi. Það ötula starf sem félagar Samtakanna 78 hafa á síðustu þrátíu árum gegnt í uppfræðslu og vitundarvakningu í mannréttindamálum er ómetanlegt. Sú fræðsla hefur leitt af sér betra, víðsýnna og frjálslyndara samfélag.  

Þegar farið er í saumana á þeirri byltingu sem orðið hefur í viðhorfum til samkynhneigðra á síðustu þrjátíu árum kemur í ljós að Samtökin 78 þurftu að taka margan slaginn. Það eru ekki mörg ár síðan samtökunum var bannað að auglýsa í útvarpi með því að nota orðin hommi og lesbía. Einnig eru ekki mörg ár síðan yfirlýstum hommum og lesbíum var meinað að sækja skemmtistaði. Almenningsálitið var ekki með samkynhneigðum og notuðu staðirnir það í auglýsingakyni að allir væru velkomnir nema hommar og lesbíur. Loks má nefna að erfitt var fyrir samtökin að komast inn í skólakerfið með fræðslu þrátt fyrir mikinn vilja nemenda og kennara.  

Íslendingar voru önnur Norðurlandaþjóðin til þess að afnema refsingar við mökum samkynhneigðra. Það gerðum við 1940. Frá þeim tímapunkti til ársins 1985 var lítið gert á Alþingi til þess að bæta úr réttarstöðu samkynhneigðra. Það ár var lögð fram þingsályktunartillaga um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðu fólki af þingmönnum allra stjórnmálaflokka nema Sjálfstæðisflokks. Ályktunin dagaði uppi í allsherjarnefnd.  

Það var ekki fyrr en 1992 sem ályktun samhljóða þeirri frá 1985 var samþykkt á Alþingi. Óhætt er að fullyrða um straumhvörf hafi þá orðið í baráttunni fyrir fullum mannréttindum samkynhneigðra á Íslandi þar sem Alþingi lýsti yfir vilja sínum til þess að tryggja að misrétti gagnvart samkynhneigðum ætti sér ekki stað.

Frá árinu 1996 til ársins 2008 voru á Alþingi samþykktar margvíslegar lagabreytingar sem snertu stöðu samkynhneigðra. Í fyrstu náðust í gegn lög um staðfesta samvist og lög sem banna hverskonar mismunun á grundvelli kynhneigðar. Það var síðan árið 2006 sem fjölskylduréttur samkynhneigðra var tryggður til jafns á við gagnkynhneigða. Þá gátu samkynhneigð pör m.a. fengið óvígða sambúð sína viðurkennda auk þess að öðlast rétt til ættleiðinga og tæknifrjóvgana.

Föstudagurinn 27. júní 2008 var stór dagur í sögu þjóðarinnar, stærri en margir gera sér grein fyrir. Þann dag tóku gildi lög sem veittu prestum og forstöðumönnum trúfélaga rétt til þess að gefa saman samkynhneigð pör í staðfesta samvist. Nú er lagalegu jafnrétti náð á Íslandi og stöndum við einna fremst þjóða þegar kemur að réttindum samkynhneigðra.  

Fyrir hönd Sambands ungra framsóknarmanna óska ég Samtökunum 78 til hamingju með afmælið og áfangann í réttindabaráttunni. Um leið þakka ég þeim sem þar hafa starfað ómetanlegt starf á síðustu 30 árum. Ef ekki væri vegna þeirra sem þorðu væri ástandið annað á Íslandi í dag. Starf þeirra hefur skilað sér margfalt til baka í bættu samfélagi okkur öllum til heilla.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður SUF

Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is