Forsíđa  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
07 / 07 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Smáir en knáir háskólar

Ţann 14. júní 2003 var ég staddur í Háskólabíó ţar sem fram fór fram óvenju merkileg brautskráningarathöfn frá Kennaraháskóla Íslands. Í ávarpi sínu viđ athöfnina velti dr. Ólafur Proppé ţáverandi rektor skólans ţví upp hvort ekki vćri rétt ađ sameina alla opinbera háskóla á Íslandi undir einu merki. Ţađ stóra skref sem stigiđ var í síđustu viku ţegar opinberum háskólum fćkkađi um einn er ekki síst Ólafi ađ ţakka. Ţá sameinuđust Háskóli Íslands og Kennaraháskólinn undir merkjum ţess fyrrnefnda.  

Á síđustu árum hafa orđiđ miklar breytingar í íslensku háskólaumhverfi. Í ársbyrjun 1998 voru ţrír skólar á framhaldsskólastigi, ţ.e. Fósturskóli Íslands, Íţróttakennaraskóli Íslands og Ţroskaţjálfaskóli Íslands sameinađir Kennaraháskólanum. Sú sameining tókst vel sem og sameining Háskólans í Reykjavík og Tćkniskólans. Landbúnađarháskólinn á Hvanneyri, Garđyrkjuskólinn á Reykjum og Rannsóknarstofnun Landbúnađarins sameinuđust í Landbúnađarháskóla Íslands áriđ 2005 og loks varđ Listaháskóli Íslands til.  

Nú velta ţví margir fyrir sér hvert nćsta skref skuli vera í sameiningu háskóla. Samkvćmt höfđatölunni sem jafnan er höfđ til hliđsjónar ţegar Íslendingar kryfja málin til mergjar kemur í ljós ađ sjö háskólar er of mikiđ fyrir ţessa rúmlega 300.000 manna ţjóđ. Ţessu hefur veriđ haldiđ fram í opinberri umrćđu af fullkomnu ábyrgđarleysi á síđustu dögum, vikum, mánuđum og árum. Tökum 600.000 manna borgina Boston sem dćmi međ um 50 háskóla, ţar af nokkra ţeirra bestu í heiminum.  

Boston var dćmigerđ iđnađarborg á fyrri hluta síđustu aldar en er í dag ein helsta miđstöđ ćđri menntunar í heiminum. Í borginni fćđast hugmyndir á sviđum vísinda-, tćkni- og stjórnmála sem hafa áhrif á heimsbyggđina alla. Ţađ er ekki einni stofnun ađ ţakka ađ Boston er í ţessari stöđu heldur nýtur borgin góđs af fjölda ţeirra skóla sem ţar starfa. Viđ sjáum dćmi ţess mikiđ víđar en í Boston hvernig háskólar og ţekkingarstofnanir hafa orđiđ mikilvćgir kjarnar byggđalaga. Nćrtćkt dćmi er Borgarfjörđurinn međ háskóla á Bifröst og Hvanneyri.  

Borgfirsku skólarnir eru alls ekki fjölmennir og eru ţví líklega margir sem telja ţá betur setta sameinađa öđrum skólum. Undir ţau rök get ég ekki tekiđ. Fámennir skólar geta vel sinnt hlutverki sínu sem ţekkingarstofnanir og gott betur. Viđ mćlum ekki gćđi háskóla međ fjölda nemenda og eigum viđ ţví ekki ađ einblína um of á ţann ţátt í mati á skólunum. Ţađ er ţó rétt ađ hafa ţađ í huga ađ allir háskólarnir sem starfa hér á landi mćttu gjarnan auka samvinnu sín á milli sem og auka samstarf viđ ađrar rannsóknar- og ţekkingarstofnanir.

Frumforsenda ţess ađ Ísland geti talist samkeppnishćft á alţjóđavettvangi í framtíđinni er ađ hér byggist upp háskólaumhverfi sem stenst samanburđ viđ nágrannaríki okkar. Ţađ er ţví nauđsynlegt ađ hér starfi nokkrir skólar í samkeppni og samvinnu viđ stóran og öflugan sameinađan skóla Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. Ţannig stuđlum viđ ađ fjölbreytni í námi og rannsóknum sem skilar sér beint út í atvinnulífiđ.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformađur SUF
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is