Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
28 / 07 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Með bundið fyrir augun og eyrnatappa í eyrum er sama gamla platan spiluð endalaust

Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar og þá sér í lagi Samfylkingarinnar hafa sýnt það og sannað síðustu daga að enginn er jafn blindur og sá sem ekki vill sjá. Að þeirra mati hefur flokkurinn ekki gert neitt til þess að eiga skilið skammir vegna efnahagsástandsins sem nú ríkir. Einmitt vegna þess að flokkurinn hefur ekkert gert er ástandið jafn slæmt og það er. Í rúmt ár hefur verið kallað eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum en lítið hefur verið um svör. Væri ríkisstjórnin í forsvari fyrir fyrirtæki væru eigendur þess löngu búnir að koma henni frá.

Það hlýtur að vera erfitt að vera stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins eða Samfylkingarinnar í dag á meðan ríkisstjórnin virðist vera sigla áður velbúinni þjóðarskútunni í strand. Það er reyndar eðlilegt að velta því upp hvort Samfylkingin sé í raun og veru í ríkisstjórn. Hún er það allavega að nafninu til þó flokkurinn virðist af fjölmiðlum að dæma og ekki síst þeim fréttatilkynningum sem hann sendir frá sér enga ábyrgð bera á ákvörðunum og aðgerðaleysi stjórnarinnar.

Við erfiðleikum sínum hafa stuðningsmenn Samfylkingarinnar ákveðið að fara í sama hlutverkaleik og ráðherrar og þingmenn flokksins hafa verið í þetta kjörtímabil, nefnilega að leika stjórnarandstæðinga. Þegar maður er ekki þáttakandi í leiknum virkar hann hálf kjánalegur. Markmiðið virðist vera að telja þjóðinni trú um að Framsóknarflokkurinn sé enn í ríkisstjórn og allt sem miður fer hjá núverandi ríkisstjórn skal vera framsóknarmönnum að kenna. Það skiptir ekki máli hvort eitthvað vit sé í ásökunum, bara að öðrum sé kennt um vandann. Flestar ásakanirnar eru svo fáránlegar að auðvelt er að hrekja þær í stuttu máli.  

Það markmið Framsóknarflokksins að auðvelda ungu fólki kaup á fyrstu íbúð með 90% lánum frá Íbúðalánasjóð er til dæmis ekki orsakavaldur þrenginga í efnahagslífinu þó einhverjir vilji meina að svo sé. Tillögurnar sem settar voru fram á sínum tíma voru vel ígrundaðar og miðuðust við að þeim yrði AÐEINS komið í framkvæmd ef aðstæður í efnahagslífinu leyfðu það. 90% lánin áttu fyrst að vera í boði síðasta vor en harkalegar aðgerðir bankanna haustið 2004 gerðu það að verkum að Íbúðalánsjóður neyddist til að bjóða upp á þau fjórum mánuðum síðar. Kjörin voru þó langt í frá sambærileg við það sem bankarnir buðu upp á enda miðaði Íbúðalánsjóður við brunabótamat þegar ákvörðun um lán var tekin auk þess að sem þak á lánunum var vel innan við 20 milljónir.  

Stóriðju- og virkjanaframkvæmdum er ekki um að kenna. Fyrrum forstöðumaður Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands og nýráðinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar sagði t.d. 1. mars 2006 að þáttur stóriðju hefði verið ofmetinn í leit að orsökum þenslu í þjóðfélaginu. Orsakirnar væri að finna hjá bönkunum en þó sérstaklega Seðlabankanum. Á sínum tíma var nauðsynlegt að leita leiða til að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins. Áhrif álversins á Austurlandi birtast okkur í dag í meiri útflutningsverðmætum á meðan eftirspurn eftir neyslutengdum innflutningi dregst saman. Ástandið væri því enn verra ef ekki væri fyrir álver á Austurlandi.

Þegar þessi rök hafa verið hrakin þarf að kokka upp nýjar ásakanir. Það nýjasta sem kokkað hefur verið upp er að viðskiptaráðherrar Framsóknarflokksins hafi komið á flotgengi sem orsakaði kreppu. Að vísu var það Seðlabankinn sem kom flotgenginu á en látum það liggja á milli hluta. Matsfyrirtækið Fitch Ratings er ekki á sama máli og þeir sem gagnrýna flotgengið. Oft hefur fyrirtækið sem og önnur slík hrósað þeirri ákvörðun að tekið skuli hafa verið upp flotgengi. Sé t.d. gripið niður í frétt frá fyrirtækinu frá því 9. nóvember 2006 má m.a. lesa að sterk staða ríkisfjármála og upptaka flotgengis hafi búið hagkerfið betur undir að þola ágjöf og aðlagast breyttum aðstæðum.  

Vilji stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar finna orsakir núverandi efnahagsástands þurfa þeir að yfirgefa híbýli framsóknarfólks og halda heim á leið. Nú er komið nóg af dylgjum í garð Framsóknarflokksins enda eru þær lítið annað en smjörklípur sem beina eiga athyglinni frá þeim efnahagsvanda sem núverandi ríkisstjórn kyndir undir með aðgerðaleysi sínu. Ég skal þó alveg viðurkenna að sjálfsagt sárnar stuðningsmönnunum stjórnarinnar að horfa upp á hana aðgerðalausa í sumarfríi á meðan Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ábyrgar tillögur til að takast á við vandann.  

Tillögur þingflokks framsóknarmanna vegna ástands efnahagsmála má nálgast hér.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður SUF

Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is