 |
27 / 04 / 2009 | Ritstjórn
Sigur okkar allra
Kæru SUF-arar
Framsóknarflokkurinn hefur nú náð vopnum sínum á ný. Eftir kosningarnar á laugardaginn er flokkurinn kominn með níu þingmenn, bætti við sig tveimur og fékk samtals 14,8% fylgi á landsvísu. Við erum með yfir 20% í öllum landsbyggðarkjördæmunum og aðeins munaði 32 atkvæðum á að 10 þingmaðurinn kæmist inn. Það minnir okkur bara á það sem við vissum að hvert atkvæði skiptir máli.
Staða flokksins var orðin mjög alvarleg á síðasta ári. Baráttan fyrir því að ná flokknum úr 6-8% fylgi sem hann virtist vera orðinn fastur í samkvæmt könnunum er nú að skila sér, baráttan fyrir uppgjöri við fortíðina, baráttan fyrir því að leggja innanflokksátök til hliðar og baráttan fyrir breytingum. Við SUF-arar vorum í fararbroddi þeirrar baráttu. Nú er það okkar verkefni að halda áfram á sömu braut og auka fylgi flokksins enn frekar.
Við sigrum ekki kosningar með auglýsingum. Þær eru nauðsynlegur stuðningur en ef við höfum ekki áhugann, kraftinn og vonina um betra Ísland þá verður árangurinn enginn. Við hefðum aldrei náð þeim árangri sem við náðum á laugardaginn ef ungt framsóknarfólk um allt land hefði ekki starfað af þeim krafti og áhuga sem það hefur gert síðasta árið. Sigurinn er ekki árangur eins manns eða fámenns hóps. Þetta er sigur okkar allra.
Við viljum þakka þér fyrir þitt framlag í kosningabaráttunni. Það hefur verið einstaklega gaman að starfa með ykkur öllum síðustu vikurnar. Það hljómar kannski eins og gömul tugga en margar hendur vinna létt verk. Það sýndi sig á laugardaginn svo um munar.
Við eigum að vera stolt af því að vera framsóknarmenn. Hófsamur miðjuflokkur eins og Framsóknarflokkurinn sem vinnur eftir hugsjónum frjálslyndrar félagshyggju og samvinnu á mikil sóknarfæri til framtíðar litið. Leiðin liggur upp á við héðan í frá.
Bryndís Gunnlaugsdóttir, formaður SUF
Eggert Sólberg Jónsson, varaformaður SUF
|
|
 |
|
|